Persónuverndarstefna
PERSÓNUVERNDARSTEFNA HÓMER EHF.
Við hjá Hómer ehf. (hér eftir nefnt „Hómer “ eða „við“) leggjum mikla áherslu á
persónuvernd.
Í tengslum við notkun viðskiptavina á smáforritinu Hómer og notkun þjónustukerfa Hómer
(hér eftir nefnd „Kerfin“) vinnur Hómer persónuupplýsingar.
Hómer ehf. starfar sem vinnsluaðili í skilningi persónuverndarlaga, í tengslum við
mismunandi vinnsluaðgerðir en ábyrgðaraðili í ákveðnum tilvikum.
Þessi persónuverndarstefna gildir um vinnslu Hómer sem ábyrgðaraðila.
Persónuverndarstefnan lýsir því hvaða persónuupplýsingar Hómer vinnur, hverjum gögnin
tilheyra, í hvaða tilgangi vinnslan fer fram, hversu lengi gögnin eru geymd o.s.frv.
Öll vinnsla persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi lög, þ.m.t. reglugerð (ESB)
2016/679 frá Evrópuþinginu og ráðinu frá 27. apríl 2016 um vernd einstaklinga með tilliti til
vinnslu persónuupplýsinga og frjáls flæðis slíkra gagna („GDPR“) og Persónuverndarlaga nr.
90/2018.
Lagalegur grundvöllur vinnslunnar:
Vinnsla persónuupplýsinga er forsenda þess að félagið geti veitt þá þjónustu sem
viðskiptavinur óskar eftir. Vinnslan er nauðsynleg til að hægt sé að efna samning við
viðskiptavin, þar með talið vegna samningsgerðar í samræmi við notendaskilmála sbr. 2. tl. 9.
gr. laga um persónuvernd nr. 90/2018.
Vinnsla tiltekinna persónuupplýsinga byggir á lögmætum hagsmunum félagsins sbr. 6. tl. 9.
gr. laga um persónuvernd nr. 90/2018 eða samþykki notanda fyrir öflun sbr. 1. tl. 9. gr. sömu
laga og vinnslu þeirra eftir því sem kemur fram í skilmálum þessum og notendaskilmálum
forritsins.(Appið?)
Hvaða persónuupplýsingum söfnum við og hvers vegna?
Viðskiptavinir og Hómer
Viðskiptavinir okkar eru í flestum tilvikum einstaklingar. Gögnin sem við vinnum um
viðskiptavina okkar eru:
- Auðkennisupplýsingar, t.d.: nafn, netfang og símanúmer.
- Auðkennisupplýsingar t.d.: afrit af tölvupóstsamskiptum og þjónustubeiðnum.
Þar sem viðskiptavinir okkar eru einstaklingar vinnum við einnig gögn svo sem kennitölu og
heimilisfang viðskiptavinarins, sem og afrit af reikningum (á mínum síðum). Vinnsla vegna reikninga einstaklinga fer fram á grundvelli nauðsynjar til að efna samning um notkun
forritsins og þjónustur.
Ef einstaklingur biður um aðgang að Hómer vinnum við einnig gögn um nafn, kennitölu,
símanúmer og netfang viðkomandi til að veita aðgang að forritinu. Þessi vinnsla er
nauðsynleg til að uppfylla beiðnir viðkomandi í forritinu og veita umbeðinn aðgang.
Notendur Hómer
Þegar notendur gera tilboð í gegnum kerfi Hómer vinnum við Auðkennisupplýsingar
notenda og upplýsingar um kauptilboð sem svokallaður vinnsluaðili fyrir þann einstakling
eða fyrirtæki sem er söluaðili fasteignarinnar og notandinn á samskipti við („þjónustuaðili“).
Til að fá upplýsingar um hvernig þjónustuaðilar vinna gögn notenda, er bent á að kynna sér
persónuverndarstefnur viðkomandi þjónustuaðila. Hómer vinnur þessi gögn eingöngu á
grundvelli fyrirmæla þjónustuaðila og kemur upplýsingunum til þeirra í formi kauptilboða.
Til að geta boðið notendum viðbótarþjónustu, t.d. að halda utan um öll tilboð á einum stað,
stinga upp á nýjum fasteignum sem notendur gætu haft áhuga á og senda tilkynningar um
nýjar eignir, til þess að efna samning við notendur forritsins er eftirfarandi upplýsingum
safnað:
- Auðkennisupplýsingar t.d. gervidulkenni, nafn, kennitala, lögheimili, símanúmer og
netfang. - Viðskiptasaga, t.d. upplýsingar um þín kauptilboð auglýsingakaup o.fl.
- Uppáhalds auglýsingar/eignir: t.d. eignavaktir og óskalista.
Þessi vinnsla er nauðsynlegt til að hægt sé að efna samning í samræmi við notendaskilmála
fyrirtækisins. Fyrirtækið Hómer er ábyrgðaraðili þessara upplýsinga.
Auk þessa vinnum við í einhverjum tilvikum með upplýsingar um samskiptasögu þína við
Hómer, eins og t.d. þjónustubeiðnir. Slík vinnsla er nauðsynleg til að geta veitt þér þjónustu
og svara fyrirspurnum og beiðnum um aðstoð.
Við getum einnig boðið þér að skrá þig á póstlistann okkar þannig að við getum sent þér
fréttir og tilboð. Slík vinnsla er einnig háð samþykki þínu.
Ef um vinnslu annarra upplýsinga er að ræða er óskað sérstaklega eftir samþykki fyrir því.
Smáforritið Hómer, vefsíðan www.hómer.is og www.homerapp.is og Hómer – kökur
Vefsíðurnar og smáforritið: hómer.is og homerapp.is nota kökur. Kökur sem er að
finna á vefsíðu Hómer eru einungis notaðar í tölfræðilegum tilgangi og vinnsla þeirra fer
fram á grundvelli lögmætra hagsmuna okkar.
Á vefsíðu Hómer og smáforritinu er hins vegar bæði að finna tölfræðilegar kökur og
markaðskökur. Notkun markaðskaka er aðeins unnið í samræmi við lögmæta hagsmuni.
Frekari upplýsingar um notkun kaka hjá Hómer má finna í kökustefnu fyrirtækisins.
Fyrirspurnir
Ef þú hefur samband við okkur og óskar eftir upplýsingum um þjónustuna okkar eða aðstoð,
þurfum við að vinna með auðkennisupplýsingar þínar og aðrar upplýsingar sem þú sendir
okkur, til að svara fyrirspurn þinni. Slík vinnsla er því framkvæmd á grundvelli beiðni þinnar.
Miðlun upplýsinga til þriðju aðila
Hómer kann að nýta þjónustu utanaðkomandi veitenda, t.d. varðandi hýsingu og tæknilega
aðstoð. Slíkir aðilar starfa þá sem vinnsluaðilar fyrir hönd fyrirtækisins og Hómer gerir
samninga við þessa aðila sem tryggja öryggi persónuupplýsinga sem unnið er með. Aðeins
viðurkenndir hýsingaraðilar
Ef notendur Hómer velja uppáhaldsþjónustuveitendur sína, kann Hómer að deila
upplýsingum um val notanda á tilteknum þjónustuveitanda með viðkomandi
þjónustuveitanda.
Í tengslum við möguleg samruna eða yfirtöku kann fyrirtækið einnig að deila afmörkuðum
upplýsingum um notendur með hugsanlegum fjárfestum. Fyrirtækið kann einnig að deila
takmörkuðum gögnum með ráðgjöfum fyrirtækisins, t.d. endurskoðendum og/eða
lögfræðingum, að því marki sem nauðsynlegt er.
Að öðru leyti miðlar fyrirtækið ekki persónuupplýsingum til þriðju aðila nema ef það er skylt
samkvæmt lögum eða á grundvelli dómsúrskurðar.
Vinnslutími gagna
Hómer geymir gögn þín eins lengi og nauðsynlegt og lögmætt er, en yfirleitt ekki lengur en
eitt ár eftir að beiðni hefur verið afgreidd. Bókhaldsgögn eru geymd í sjö ár, í samræmi við
lagaskyldu.
Öryggisráðstafanir
Fyrirtækið leitast við að grípa til viðeigandi tæknilegra og stjórnunarlegra ráðstafana til að
vernda persónuupplýsingar, með sérstakri áherslu á eðli þeirra gagna sem unnið er með.
Dæmi um slíkar öryggisráðstafanir eru aðgangsstýringar að kerfum þar sem gögn eru geymd
og notkun eldveggja.
Þessar ráðstafanir eru ætlaðar til að vernda persónuupplýsingar gegn óvæntri glötun eða
breytingum og gegn óheimilum aðgangi, afritun, notkun eða birtingu.
Réttindi þín
Þú átt rétt á aðgangi að og í ákveðnum tilvikum áttu rétt á að fá afrit af þeim
persónuupplýsingum sem við vinnum um þig, ásamt upplýsingum um vinnsluna.
Í tilteknum tilfellum átt þú einnig rétt á að láta eyða persónuupplýsingum þínum eða að óska
takmörkunar á vinnslu. Þú átt einnig rétt á að láta leiðrétta persónuupplýsingar ef þær eru
rangar eða ónákvæmar. Það er því mikilvægt að þú látir okkur vita ef persónuupplýsingar sem
þú hefur veitt okkur breytast, eftir því sem við á. Í flestum tilvikum geta notendur breytt eigin
persónuupplýsingum sjálfir í kerfinu.
Auk þess átt þú rétt á að fá persónuupplýsingar sem þú hefur veitt okkur á vélrænu lesanlegu
formi eða biðja um að gögnin verði send beint til þriðja aðila.
Þegar við vinnum persónuupplýsingar þínar á grundvelli lögmætra hagsmuna getur þú ávallt
andmælt slíkri vinnslu. Í þeim tilfellum þar sem vinnsla okkar byggir á samþykki hefur þú
einnig alltaf rétt á að afturkalla slíkt samþykki.
Þessi réttindi eru þó ekki algild. Lög eða reglur geta heimilað eða skyldað fyrirtækið til að
hafna beiðni þinni um að nýta réttindi þín. Hins vegar er réttur þinn til að andmæla vinnslu
persónuupplýsinga þinna í tengslum við beina markaðssetningu skilyrðislaus.
Ef þú vilt senda erindi beint til Persónuverndar eða í tilviki ágreinings um vinnslu
persónuupplýsinga þinna getur þú ávallt sent kvörtun til Persónuverndar. Það má gera með
því að senda tölvupóst á postur@personuvernd.is eða senda bréf á:
Persónuvernd
Rauðarárstígur 10
105 Reykjavík
Ísland
Auðkennisupplýsingar
Ef þú vilt nýta réttindi þín sem lýst er í þessari persónuverndarstefnu eða ef þú hefur
spurningar um hvernig við vinnum persónuupplýsingar þínar, vinsamlegast hafðu samband
við okkur. Fyrirtækið leitast við að svara spurningum þínum og veita leiðbeiningar um
réttindi þín samkvæmt þessari persónuverndarstefnu á homerapp@homerapp.is
Breytingar á persónuverndarstefnu
Fyrirtækið kann frá einum tíma til annars að gera breytingar á þessari persónuverndarstefnu í
samræmi við breytingar á gildandi lögum eða reglugerðum eða vegna breytinga á því hvernig
fyrirtækið vinnur persónuupplýsingar. Ef breytingar eru gerðar á þessari
persónuverndarstefnu, verður uppfærð útgáfa birt á vefsíðu fyrirtækisins.
Breytingar á þessari persónuverndarstefnu taka gildi frá þeim tíma sem uppfærð útgáfa hefur
verið birt.
Síðast uppfært: 28. janúar 2025.